
“Pecan Pie” ostakaka sem slær í gegn

by Avistain Bakstur, Eftirréttir, Jól, Kaka
Eldun
25 mínúturTilbúið
6 klstFylling
3 pakkar Philadelphia rjómaostur
200 g púðursykur
3 stór egg
60 g sýrður rjómi
2 msk hveiti
1 tsk vanilludropar
1/4 tsk sjávarsalt
Hrærið saman rjómaosti og púðursykri. Bætið eggjum saman við einu í einu þá sýrðum rjóma, hveiti, vanilludropum og salti. Hellið blöndunni í formið yfir kexbotninn (sjá botn) og bakið í 170°c heitum ofni í 1 klst og 30 mínútur. Gott er að hafa álpappír undir forminu á meðan bökunatíma stendur. Slökkvið á ofninum og opnið hann. Látið kökuna kólna inn í ofninum. Takið út og geymið í kæli í amk 5 klst.
Botn
10 hafrakexkökur, muldar
6 msk smjör, brætt
50 g púðursykur
klípa sjávarsalt
Bræðið smjör og bætið hinum hráefnunum saman við. Látið smjörpappír í botninn á 22 cm formi og látið kexbotninn þar í. Þrýtið aðeins á hann og þjappið þannig saman.
Hnetutoppur
4 msk smjör
100 g púðursykur
1/2 tsk kanill
60 ml rjómi
130 g pekanhnetur
klípa sjávarsalt
Hitið smjör og púðursykur saman í potti við lágan hita. Þegar byrjað að búbbla bætið hinum hráefnunum saman við og hrærið vel saman svo það þeki henturnar. Látið kólna og setjið svo yfir kökuna.
Fyrir 10

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.
Leave a Reply