500 g pasta, t.d. penne eða farfalle | |
1 lítill rauðlaukur, saxaður | |
1 rauð paprika, skorin í litla bita | |
500 g beikon, skorin í litla bita | |
250 g sveppir, skornir í fernt | |
1 hvítlauksostur, skorinn í bita | |
500 ml matreiðslurjómi | |
1 tsk nauta- eða kjúklingakraftur | |
svartur pipar |
Fyrir 3-4
1. | Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. |
2. | Setjið ólífuolíu og 1-2 msk af smjöri á pönnu og látið papriku, rauðlauk, beikon og sveppi út á pönnuna og steikið þar til beikonið er farið að dökkna. Hrærið reglulega í blöndunni. |
3. | Bætið hvítlauksosti, rjóma og krafti saman við og látið malla við meðalhita þar til osturinn er bráðinn. |
4. | Smakkið til með svörtum pipar og njótið. |
Leave a Reply