Innihaldslýsing

500 g pasta, t.d. penne eða farfalle
1 lítill rauðlaukur, saxaður
1 rauð paprika, skorin í litla bita
500 g beikon, skorin í litla bita
250 g sveppir, skornir í fernt
1 hvítlauksostur, skorinn í bita
500 ml matreiðslurjómi
1 tsk nauta- eða kjúklingakraftur
svartur pipar
Fyrir 3-4

Leiðbeiningar

1.Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.
2.Setjið ólífuolíu og 1-2 msk af smjöri á pönnu og látið papriku, rauðlauk, beikon og sveppi út á pönnuna og steikið þar til beikonið er farið að dökkna. Hrærið reglulega í blöndunni.
3.Bætið hvítlauksosti, rjóma og krafti saman við og látið malla við meðalhita þar til osturinn er bráðinn.
4.Smakkið til með svörtum pipar og njótið.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.