Þessi kaka kemst ansi nálægt fullkomnun og minnir að einhverju leyti á lúxusútgáfu af hjónabandssælu nema með súkkulaði og geggjaðri Dumle karamellusósu. Í þessa uppskrift notaði ég lífræna hafra frá Rude Health en þær vörur eru alveg frábærar. Ég hef mikið verið að nota hafrana í grauta og þeyting en langaði að prufa að baka úr þeim.
Rude Health hafrarnir eru spíraðir sem þýðir að þeir eru vaktir til lífsins sem losar lífsnauðsynleg næringarefni, sem gerir þá mun auðveldari til að melta. Þetta þýðir einnig að bragðið er dýpra og rjómakenndara. Algjörlega dásamlegt.
Rude Health vörurnar fást í eftirtöldum verslunum.
Færslan er unnin í samstarfi við Einstök matvara
Leave a Reply