Uppskriftin er aðlöguð að uppskrift frá Sallys Baking Addiction
2 dósir svartar baunir | |
1 msk ólífuolía | |
1/2 paprika, smátt skorin | |
1/2 laukur, smátt saxaður | |
3 hvítlauksrif, pressuð | |
1 1/2 tsk cumin | |
1 tsk chilí duft | |
1/2 tsk hvítlauksduft | |
1/4 tsk reykt paprika | |
1/2 bolli brauðrasp | |
1/2 bolli fetaostur | |
2 egg | |
1 msk worcestershire sósa | |
2 msk tómat- eða bbq sósa | |
salt og pipar |
1. | Hellið vökvanum frá baununum og leggið á ofnplötu með smjörpappír. Dreyfið vel úr og eldið við 150°c í 15 mínútur. |
2. | Setjið olíu í pott og steikið lauk, hvítlauk og papriku við vægan hita. Setjið í skál ásamt hinum hráefnunum og bætið að lokum svörtu baunum saman við. Stappið baunirnar lítillega og mótið í buff. |
3. | Ef deigið er of blautt bætið þá smá hveiti saman við. |
4. | Grillið eða látið í 190°c heitan ofn í 10 mínútur á hvorri hlið. |
Uppskriftin er aðlöguð að uppskrift frá Sallys Baking Addiction
Leave a Reply