300 g risarækjur frá Sælkerafiski | |
400 g hrísgrjónanúðlur fyrir 4 persónur | |
2 gulrætur, skornar langsum í þunnar sneiðar | |
1 agúrka, skorin í tvennt og í þunnar sneiðar | |
100 g ristaðar kasjúhnetur | |
1 rautt chillí, skorið í þunnar sneiðar | |
ferskt kóríander | |
Spicy chilísósa | |
safi úr 1 1/2 stk af limónu | |
2 1/2 msk srirachasósa | |
1 tsk ferskt engifer, rifið fínt | |
1 hvítlauksrif, rifið fínt | |
3 msk fiskisósa frá Blue dragon (smakkað til) | |
1 msk vatn | |
2-3 msk sykur (smakkað til) |
Fyrir 4
1. | Blandið hráefnum fyrir chilísósuna saman í skál og blandið saman. Smakkið til. |
2. | Hitið olíu á pönnu og steikið risarækjurnar eða þar til þær eru orðnar bleikar á lit. Undir lok eldunartímans bætið um 2-3 msk af chilísósunni saman við. |
3. | Ristið kasjúhneturnar á pönnu og takið til hliðar. |
4. | Sjóðið núðlurnar skv. leiðbeiningu á pakkningu. Skolið með köldu vatni. |
5. | Skerð grænmetið og látið í skál ásamt núðlunum. Hellið helming af chilísósunni saman yfir núðlurnar og blandið vel saman. |
6. | Látið kasjúhnetur, rautt chilí og kóríander yfir núðlurnar. |
7. | Berið fram með risarækjunum og chilísósu. |
Leave a Reply