Barenaked pasta og hrísgrjón eru fullkominn valkostur fyrir alla sem vilja minnka hlutfall kolvetna í mataræði sínu og þá sem eiga við sykursýki eða glútenóþol að stríða. Barenaked lágkolvetna vörurnar eru fitusnauðar og innihalda einungis 15-22 kaloríur í hverjum skammti.
Lykilhráefni í Barenaked vörunum er konjac-rótin sem er ræktuð víða í Asíu og er nánast kaloríu- og kolvetnasnauð. Konjac-rótin er mjög trefjarík en inniheldur hvorki fitu, sykur né sterkju. Hún er því frábær kostur fyrir þá sem aðhyllast kolvetnaminna mataræði, ketó, LKL eða eru vegan.
Í Barenaked vörunum er blanda af konjac-rót, sojabaunamjöli og haframjöli en þannig fæst áferð sem líkist hefðbundnum rísnúðlum. Núðlurnar okkar og hrísgrjónin eru fljótelduð og drekka í sig bragð af hvers kyns sósum, súpum og kryddum. Á svipstundu má því töfra fram næringarríka og ljúffenga máltíð í erli dagsins í stað þess að grípa óhollan skyndibita.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Barenaked
Leave a Reply