

| 130 g makkarónukökur, muldar | |
| 100 g smjör, bráðið | |
| 1 pakki (1,3L) Veisluís frá Emmessís með eplum, kanil og kökukurli | |
| 250 ml rjómi, þeyttur | |
| Karamellu íssósa frá Emmessís | |
| Súkkulaði að eigin vali, saxað |
| 1. | Blandið bræddu smjöri og muldum makkarónum vel saman. |
| 2. | Látið ís í form, gott er að nota form sem er annaðhvort úr siliconi svo auðvelt sé að ná honum úr forminu eða láta plastfilmu í formið áður en ísinn er settur í. Látið síðan makkarónumulninginn yfir ísinn og þrýstið honum lítillega niður í ísinn. Látið í frysti í að minnsta kosti klukkustund. |
| 3. | Takið úr frysti og látið ískökurnar á diska. Látið rjóma á toppinn með sprautustúti, hellið smá karamellusósu yfir og stráið súkkulaði yfir allt. |

Leave a Reply