
Uppskriftin er unnin að fyrirmynd frá Half baked harvest.
Færslan er gerð í samstarfi við Örnu

| 2 msk ólífuolía | |
| 700 g kjúklingur, mæli með kjúklingalærum | |
| 1 laukur, saxaður | |
| 2-3 tsk chipolte krydd (ég notaði Marokkóska harissu frá Kryddhúsinu) | |
| 2 tsk reykt paprika | |
| 1 1/2 tsk cumin | |
| 1 tsk hvítlaukskrydd | |
| 1/2 tsk chilíflögur | |
| 1/2 tsk oregano | |
| 1 tsk sjávarsalt | |
| 12 taco skeljar | |
| rifinn ostur |
| 1. | Setjið kjúklinginn í matvinnsluvél og blandið saman þar til kjúklingurinn er orðinn að hakki. |
| 2. | Hitið olíu á pönnu og bætið þá kjúklingnum út á pönnuna og steikið. Setjið laukinn saman við. |
| 3. | Þegar kjúklingurinn er farinn að aðskiljast bætið þá kryddum út á pönnuna ásamt 1 dl af vatni. Látið malla þar til sósan er farin að þykkna eða í 5-10 mínútur. |
| 4. | Takið af hitanum og bætið söxuðu kóríander saman við. |
| 5. | Penslið skeljarnar með ólífuolíu og setjið þá í 175°c heitan ofn í 5 mínútur. Takið úr ofni og skiptið kjúklingnum niður á skeljarnar og stráið rifnum osti yfir. |
| 6. | Látið í ofn í 10 mínútur eða þar til kjúklingurinn er bráðinn. |
| 7. | Berið fram með sósunni, avacado, límónu, tómötum nú eða því sem hugurinn girnist. |
Leave a Reply