Innihaldslýsing

1/4 bolli kókosolía bragðlaus frá Rapunzel
1/2 bolli hlynsíróp frá Rapunzel
1/4 bolli hafrahveiti (haframjöl malað í matvinnsluvél)
2 bollar grófvalsaðir hafrar frá Rapunzel
1 bolli blönduð fræ að eigin vali (ég notaði sólblóma og sesamfræ frá Rapunzel)
1/2 bolli pekanhnetur
1 msk kanill
1/2 tsk sjávarsalt
Að gera sitt eigið granóla er ótrúlega auðvelt og að sjálfsögðu alltaf miklu betra en það sem við kaupum í búðinni. Það er hægt að leika sér með innihald, taka eitthvað út og bæta í ef maður er með góðan grunn. Þessi uppskrift er auðveld en auk þess er hún vegan og lífræn svo hún...

Leiðbeiningar

1.Hitið ofninn í 150°C
2.Bræðið kókosolíu og hlynsíróp saman í litlum potti
3.Blandið saman í stórri skál: Hafrahveiti, haframjöli, fræjum, hnetum og kanil
4.Hellið olíu/sírópsblöndunni yfir og blandið saman með sleif
5.Dreifið blöndunni jafnt á bökunarpappír og bakið í 45 -50 mín og hrærið í 2x á þeim tíma.
6.Takið útúr ofninum og dreifið sjávarsaltinu strax yfir.

Að gera sitt eigið granóla er ótrúlega auðvelt og að sjálfsögðu alltaf miklu betra en það sem við kaupum í búðinni. Það er hægt að leika sér með innihald, taka eitthvað út og bæta í ef maður er með góðan grunn. Þessi uppskrift er auðveld en auk þess er hún vegan og lífræn svo hún hentar flestum.

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.