
Uppskriftin kom upprunarlega af vefnum mylittlekitchen

| 50 g smjör | |
| 5 dl mjólk | |
| 1 pakki þurrger | |
| 200 g kotasæla | |
| 2 dl haframjöl | |
| 1/2 tsk salt | |
| 10 dl hveiti (eða meira eftir þörfum) | |
| 1 egg til penslunar | |
| birkifræ |
| 1. | Bræðið smjörið í potti. Hellið mjólkina saman við. Hrærið saman. Þegar blandan er fingurvolg látið þá þurrgerið út í. |
| 2. | Setjið í hrærivélaskál ásamt haframjöli, kotasælu og salt. Bætið hveiti saman við 1 dl í einu um leið og deigið er orðið þétt í sér og óklístrað þá þarf ekki meira hveiti. Hnoðið í 5 mínútur. |
| 3. | Látið hefast í klukkustund með rakan klút yfir skálinni. |
| 4. | Skiptið deiginu niður í 18 stykki og hverju stykki í þrjá hluta. Rúllið hverjum hluta út, tengið þrjá hluta saman og fléttið. Endurtakið. |
| 5. | Látið hefast í 15 mínútur. Penslið bollurnar með þeyttu eggi og stráið birkifræjum yfir. |
| 6. | Setjið í 200°c heitan ofn í 15 mínútur eða til þau eru orðin gyllt að lit. |

Uppskriftin kom upprunarlega af vefnum mylittlekitchen
Leave a Reply