Rjómaostafylltur jalapeno er frábær sem snarl, forréttur eða sem smáréttur á veisluborðið. Uppskriftin kemur úr nýjustu bók GulurRauðurGrænn&salt sem ber sama heiti og er stútfullt af frábærum sumarlegum og partývænum uppskriftum.

| 250 g rjómaostur, t.d. Philadelphia | |
| 50 g parmesan, rifinn | |
| 150 g rifinn mozzarella | |
| 10 blöð af ferskri basilíku, söxuð | |
| 12 ferskir jalapenos (eða smápaprikur) | |
| 2 egg | |
| 3 msk vatn | |
| 120 g brauðmylsna | |
| 150 g hveiti | |
| 2 tsk paprikuduft | |
| ólífuolía |
Rjómaostafylltur jalapeno er frábær sem snarl, forréttur eða sem smáréttur á veisluborðið
| 1. | Blandið rjomaosti, parmesan, mozzarella og saxaðri basilíku saman í skál. |
| 2. | Skerið jalapeno langsum í tvennt og kjarnhreinsið. Fyllið hvorn helminginn með ostablöndunni. Hrærið eggjum saman við vatnið. Setjið brauðmylsnuna í aðra skál og hveiti í þá þriðju. |
| 3. | Dýfið jalapeno fyrst í hveiti og svo í eggjablönduna og að lokum í brauðmylsnuna. Setjið á ofnplötu með smjörpappír. |
| 4. | Kryddið með paprikudufti og dreypið dáltítilli ólívuolíu yfir. |
| 5. | Bakið í 180°c heitum ofni í 30 mínútur. |
Leave a Reply