Nú eru margir farnir að því að huga að sultugerð. Berin eru nú kannski aðeins seinni á ferðinni en vanarlega, að minnsta kosti hér á höfuðborgarsvæðinu, en þangað til að þau eru tilbúin er við hæfi að gera þessa geggjuðu tómata- og chilí chutney. Mjög einföld í gerð og tilvalin til gjafa.
500 g rauðlaukur, skorið í sneiðar | |
1 kg tómatar, saxaðir | |
4 hvítlauksrif, smátt söxuð | |
8-12 rauð chilí, gróflega söxuð | |
5 cm engiferbútur, afhýddur og saxaður | |
250 g púðursykur | |
150 ml rauðvínsedik, t.d. frá Philippo Berio | |
5 kardamommur | |
1/2 tsk paprikukrydd |
Tómata og chilí chutney
1. | Setjið öll hráefnin saman í pott og hitið við meðalhita. Látið malla í klukkustund. |
2. | Notið töfrasprota þar til hráefnin hafa blandast ágætlega saman en þó ekki alveg maukað. Það er gott að hafa grófa bita hér og þar. |
3. | Hitið að suðu þar til blandan er orðin dökk og glansandi. |
4. | Kælið og setjið í krukkur. Geymist í kæli í 6 vikur. |
5. | Berið fram með kexi og ostum eða djúpsteiktu papadums. |
Leave a Reply