Ristið fræin á pönnu þar til þau hafa fengið gullin blæ og eru farin að ilma. Kælið lítillega. Látið í skál ásamt hinum hráefnunum og blandið vel saman. Látið á fiskinn og eldið hann í 200°c heitum ofni í 10 mínútur.
Gúrm salat
1 stór gulrót, skorin í strimla
1 gúrka, kjarnahreinsuð, skorin í tvennt og svo sneiðar
1 handfylli sykurbaunir
1 handfylli baunaspírur
1 lítill rauðlaukur
1 handfylli spínat
Blandið öllu saman og hellið hluta af dressingunni yfir salatið. Berið sósuna fram með salatinu.
Tahini límónudressing
0.5 dl soyasósa
1 msk tahini
safi af 1/2 límónu
Blandið öllu vel saman.
Þessi fiskréttur er minn uppáhalds enda endurspeglar hann matargerð sem ég elska mest. Einfaldur og hollur, fallegir litir og sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Þennan verðið þið að prufa.
Leave a Reply