

| 1 bolli OTA haframjöl, gróft | |
| 1/4 bolli vanillu prótein duft (má sleppa) | |
| 3/4 bolli hnetusmjör, mjúk | |
| 1/3 bolli hunang eða agave síróp | |
| 100 g dökkt súkkulaði | |
| 2 tsk kókosolía | |
| sjávarsalt |
Ofureinfaldir nammibitar sem gott er að eiga í frysti þegar sykurþörfin kemur yfir!
| 1. | Blandið haframjöli, prótein dufti, hnetusmjöri og hunangi/sírópi vel saman. Skiptið niður á muffins form og þrýstið vel niður. Látið í kæli. |
| 2. | Bræðið súkkulaði og kókosolíu saman við vægan hita. |
| 3. | Látið um 1 msk af súkkulaðinu yfir hvern bita. |
| 4. | Stráið sjávarsalti yfir. |
| 5. | Geymist í frysti. |

Leave a Reply