Þessi heita ostaídýfa er fullkominn forréttur, partý- eða saumaklúbbsréttur. Jafnvel bara fyrir tvo að deila með góðu snittubrauði og vínglasi.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Örnu

| 1 krukka Salatfeti i kryddlegi frá Örnu | |
| 1 pk Kryddostur með pipar frá Örnu | |
| 1 hvítlauksgeiri | |
| 2 msk nýkreistur sítrónusafi | |
| 8 svartar ólífur | |
| 1/2 tsk þurrkað dill | |
| 1/2 grænn chili | |
| 4 msk majónes | |
| Rifinn ostur með hvítlauk frá Örnu | |
| Nokkrir kokkteiltómatar skornir í tvennt | |
| Fersk steinselja og vorlaukur eftir smekk |
| 1. | Hitið ofninn í 190°C |
| 2. | Sigtið fetaostinn og skerið kryddostinn í bita. |
| 3. | Setjið allt í matvinnsluvél fyrir utan rifinn ost, tómata og fersk krydd |
| 4. | Setjið í lítið eldfast mót og setjið rifinn ost ofan á eftir smekk. |
| 5. | Bakið fyrst í 10 mín, takið út og bætið hálfum kirsuberjatómötum ofan á. |
| 6. | Bakið þar til osturinn er gylltur, má vel setja grillið á í lokin. |
| 7. | Skreytið með ferskri steinselju og vorlauk en má sleppa |
Þessi heita ostaídýfa er fullkominn forréttur, partý- eða saumaklúbbsréttur. Jafnvel bara fyrir tvo að deila með góðu snittubrauði og vínglasi.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Örnu

Leave a Reply