Innihaldslýsing

6 cl Ólafsson gin
4,5 cl sítrónusíróp (uppskrift fylgir)
200ml engiferbjór
Mulinn ís
Ólafsson er besta gin í heimi. Vissulega mín skoðun en margra annarra einnig. Það er margverðlaunað þrátt fyrir að hafa verið á markaði í einungis rúmt ár. Ég drakk semsagt ekki gin fyrr en ég smakkaði Ólafsson. Það segir nú ansi margt er það ekki? Ginið er nefnt eftir Eggerti Ólafssyni skáldi og náttúrufræðingi sem...

Leiðbeiningar

1.Byrjið á því að gera sírópið og kælið.
2.Setjið mulinn ís til rúmlega hálfs í hristara.
3.Setjið síróp og Ólafsson gin yfir ísinn og hristið vel.
4.Hellið í 2 glös á fæti og toppið með engiferbjór. Takið lokið af hristaranum og setjið ísinn yfir drykkinn og skreytið með sítrónu og berki.

Ólafsson er besta gin í heimi. Vissulega mín skoðun en margra annarra einnig. Það er margverðlaunað þrátt fyrir að hafa verið á markaði í einungis rúmt ár. Ég drakk semsagt ekki gin fyrr en ég smakkaði Ólafsson. Það segir nú ansi margt er það ekki?

Ginið er nefnt eftir Eggerti Ólafssyni skáldi og náttúrufræðingi sem uppi var á 18. öld. Ginið býr yfir einstakri mýkt og þar fær íslenska vatnið að njóta sín vel. Passar sérlega vel eitt og sér með góðu tónik en einnig í allra handa kokkteila.

 

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Eyland spirits, framleiðanda Ólafssons gins.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.