Innihaldslýsing

3 egg
80 g haframjöl
2 dl skyr eða grísk jógúrt
2 bananar
1 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar
1/2 tsk sjávarsalt

Leiðbeiningar

1.Setjið egg, helminginn af haframjölinu, skyr, banana, lyftiduft, vanilludropa og salt saman í blandara (eða notið töfrasprota).
2.Blandið vel á hæsta styrk í um 1 mínútu. Hellið deiginu í skál og látið standa í 10 mínútur til að það þykkni örlítið.
3.Hrærið afganginn af haframjölinu saman við. Ef deigið er þunn bætið þá smá hveiti saman við.
4.Setjið smjör eða kókosolíu á pönnu og steikið pönnukökunar.
5.Berið fram með grískri jógúrt, ávöxtum, hlynsírópi, kókosflögum eða bara því sem hugurinn girnist þá stundina (jafnvel með sneið af osti).

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.