Innihaldslýsing

2 eggjarauður
hnífsoddur salt
1 tsk dijonsinnep
1 1/2 dl ólífuolía, t.d. jómfrúarolía frá Filippo Berio
1 hvítlauksrif, pressað
Færslan er unnin í samstarfi við Innnes

Leiðbeiningar

1.Hærið eggjarauðurnar þar til þær eru orðnar léttar og ljósar. Setjið salt saman við.
2.Bætið sinnepi saman við og hrærið áfram.
3.Á meðan verið er að hræra hellið þið olíunni smátt og smátt saman við.
4.Bætið að lokum hvítlauknum saman við og hrærið saman.

Aioli er majones sósa sem setur punktinn yfir i-ið við flestan mat. Það getur hinsvegar verið að margir mikli það fyrir sér að útbúa aioli og haldi að það sé flókið, en um leið og þið hafið prufað þessa uppskrift er ekki aftur snúið. Sósan er í raun virkilega einföld í gerð og hentar vel með öllum grillmat, kjúklingi, fiski og kjöti. Svo er einnig alveg dásamlegt að setja hvítlauksaioli á brauðið.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.