Andalæri með hvítlauks aioli og vinagrette salati
by Avistain Jól, Kjöt, Kvöldmatur
Tilbúið
60 mínErfiðleiki
EinfaltAndalæri
2 dós (2 læri í dós) Confit de canard frá Valette
Takið andalærin úr dósinni og sem minnst af fitunni með. Leggið í ofnfast mót. Saltið með sjávarsalti og látið í 180°c heitan ofn í 30-40 mínútur. Mér fnnst gott að láta á grill síðustu 1-2 mínútur til að fitan verði stökk. Berið fram t.d. með aioli, vinagrette salati og frönskum.
Hvítlauks aioli
2 eggjarauður
hnífsoddur salt
1 tsk dijonsinnep
1 1/2 dl ólífuolía, t.d. jómfrúarolía frá Filippo Berio
1 hvítlauksrif, pressað
Hærið eggjarauðurnar þar til þær eru orðnar léttar og ljósar. Setjið salt saman við. Bætið sinnepi saman við og hrærið áfram. Á meðan verið er að hræra hellið þið olíunni smátt og smátt saman við. Bætið að lokum hvítlauknum saman við og hrærið saman.
Vinagrette salat
2 msk hunang
1 msk dijon sinnep
1/2 tsk sjávarsalt
1/2 tsk svartur pipar
1-2 hvítlauksrif, pressað
60 ml balsamik edik
180 ml ólífuolía
2 pokar salat
Hrærið saman hunang, sinnep, balsamik, salt og pipar. Bætið oliunni rólega saman við og hrærið stöðugt á meðan. Hrærið þar til dressingin hefur blandast vel saman. Geymið í kæli og hristið fyrir notkun. Veltið salatinu upp úr 2-3 msk af dressingunni fyrir matinn. Berið dressinguna með til hliðar.
Þegar ég vil halda stórkostlega veislu án mikillar fyrirhafnar þá verða andalæri oft fyrir valinu. Eldamennskan gerist ekki einfaldari og þetta slær ávallt í gegn. Uppskriftin miðast fyrir 3-4 manns.
This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.
Leave a Reply