
| 2 dósir svartar baunir eða nýrnabaunir | |
| 1/2 rauðlaukur, saxaður | |
| 3 hvítlauksrif | |
| 1 paprika, smátt skorin | |
| 1 tsk chilíduft | |
| 1 tsk reykt paprikukrydd | |
| 1/2 tsk cumin (ekki kúmen) | |
| klípa af cayenne pipar | |
| salt og pipar | |
| safi úr 1 límónu | |
| 1 pakki Mission tortillur | |
| mozzarellaostur, rifinn | |
| Meðlæti til dæmis: tómatar, avacado, kál, sýrður rjómi, agúrka, ferskt kóríander, guagamole. | |
| Pam olía |
Fyrir 3-4
| 1. | Hellið vökvanum af baununum frá og hitið á pönnu ásamt lauk, hvítlauk, papriku, cumin, cayenne, salt og pipar. Kreistið límónusafanum yfir og hitið í 5 mínútur. |
| 2. | Látið ríflegt magn af mozzarella osti yfir tortillurnar og setjið baunirnar þar yfir. Rúllið þeim upp og látið í ofnfast mót. |
| 3. | Spreyjið PAM olíu yfir tortillurnar og látið ost yfir. |
| 4. | Eldið í 15-20 mínútur í 190°c heitum ofni. |
Leave a Reply