1 pakki Pizza base frá Mission, inniheldur 2 botna | |
2 camembert ostar | |
2 kúlur ferskur mozzarella | |
1 dós trönuberjasósa | |
ferskt timían | |
parmesanostur, rifinn | |
svartur pipar |
Gerir 2 pizzur
1. | Setjið 3-4 msk af trönuberjasósu á hvorn botn og dreyfið vel úr. |
2. | Skerið camembert niður í sneiðar og raðið á pizzuna. Þerrið mozzarellakúlurnar vel og rífið niður. Setjið yfir camembert ostinn. |
3. | Látið pizzuna í 200°c heitan ofn í um 15 mínútur. Fylgist með að osturinn sé mjúkur, lækkið annars hitann. |
4. | Takið úr ofni og piprið. Setjið nokkra dropa af trönuberjasósunni á pizzurnar. |
5. | Stráið parmesan yfir allt og endið á að raða fersku timían yfir pizzurnar. |
Leave a Reply