800 g hvítur fiskur, skorinn í litla bita | |
1/2-1 rauðlaukur, þunnt sneiddur | |
safi úr 5-6 límónum | |
1 1/2 tsk sjávarsalt | |
1/2 tsk svartur pipar | |
2 hvítlauksrif, pressuð | |
1 chilí, smátt skorið | |
1/2 búnt kóríander, saxað | |
250 g kirsuberjatómatar, skornir í tvennt | |
1/2 -1 agúrka, kjarnhreinsuð og smátt skorin | |
1-2 msk ólífuolía | |
1 avacado (frekar stíft), smátt skorið |
Ceviche er einn af mínum uppáhalds sumarréttum. Rétturinn kemur upprunarlega frá Perú og felst í því að fiskurinn er látinn marinerast í sítrusvökva, en sýran frá vökvanum eldar fiskinn og gefur honum gott bragð.
1. | Látið fisk, rauðlauk og límónusafa í skál. Blandið vel saman og saltið. |
2. | Bætið hvítlauk og chilí saman við. |
3. | Látið því næst agúrku, kóríander, tómata og ólífuolíu saman við og látið í kæli í að minnsta kosti klukkustund eða í allt að sólahring. |
4. | Takið úr kæli og látið avacado saman við. Smakkið til með salti, pipar, kóríander og chilí. |
Leave a Reply