Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes
Fyrir 8 - 12
| 1. | Botn: Hærið eggjahvíturnar þar til þær eru orðnar stífar. Bætið flórsykri smátt saman við og hrærið þar til marengsinn er orðinn stífur. |
| 2. | Saxið möndlur og helsihnetur og setjið varlega saman við með sleif ásamt lyftidufti og Daim kurli. |
| 3. | Dreifið úr marengsinum á bökunarplötu með smjörpappír og bakið í 175°c heitum ofni í um 30 mínútur. |
| 4. | Takið úr ofni og kælið. |
| 5. | Gula kremið: Setjið eggjarauður, sykur, rjóma og fræin úr vanillustöng saman í pott. |
| 6. | Hitið en látið ekki sjóða og hrærið í blöndunni. Þegar kremið er orðið á þykkt eins og jógúrt, takið af hitanum. |
| 7. | Setjið kremið í stóra skál og kælið. Hrærið síðan mjúku smjörinu (mikilvægt að það sé við stofuhita en ekki kalt) saman við blönduna þar til kremið er orðið mjúkt. |
| 8. | Látið gula kremið á kökuna. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og kælið lítillega og setjið síðan yfir kremið ásamt Daim kurli. |

Leave a Reply