
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

| 100 g smjör, mjúkt | |
| 100 g sykur | |
| 2 tsk vanillusykur | |
| 2 egg | |
| 1 dl mjólk | |
| 200 g hveiti | |
| 2 tsk lyftiduft | |
| 2 msk gæðakakó, t.d frá Cadbury | |
| 2 pokar Daimkurl |
| 1. | Hrærið mjúka smjörið vel og bætið sykri rólega saman við. Hrærið þar til blandan er orðin létt og ljós. |
| 2. | Bætið eggjum saman við einu í einu og hrærið áfram. Líklega þurfið þið að stoppa hrærivélina og skrapa hliðarnar á skálinni. |
| 3. | Bætið hveiti, vanillusykri, lyftidufti og kakó saman í skál. Hellið varlega saman við smjörblönduna og hrærið áfram. |
| 4. | Hellið síðan mjólk saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. |
| 5. | Hellið Daim kurli saman við og hrærið varlega saman við með sleif. |
| 6. | Skiptið deiginu niður á muffins form og látið deigið ná ca. 3/4 að brúninni. |
| 7. | Látið í 180°c heitan ofn í um 20 mínútur. |

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes
Leave a Reply