Þessum rétt var ég næstum búin að gleyma og mjög mörg ár síðan hann var gerður síðast. En í gær þegar mig langaði í eitthvað gott og smá djúsí kom þessi uppskrift upp í hugann. Dásamlega einföld og ótrúlega góð.
900 g kjúklingabringur eða læri, t.d. frá Rose Poultry | |
1 poki nachos | |
1-2 krukka salsasósa | |
1 krukka ostasósa | |
rifinn mozzarellaostur |
Styrkt færsla
1. | Steikið bringurna í gegn við vægan hita. |
2. | Myljið nachos og setjið í eldfast form. |
3. | Skerið kjúklinginn í litla munnbita og setjið ofan á nachosið. |
4. | Hellið salsasósunni yfir og síðan ostasósunni yfir það. |
5. | Setjið rifinn ost yfir og hitið í ofni við 200° þar til osturinn er bráðnaður og gylltur á lit. |
Leave a Reply