Þessar bollur eru alveg dásamlegar. Svo góðar nýbakaðar og ylvolgar. Ég mæli með því að prófa að setja bara smjör á þær eða eitthvað af þessum dásamlegu kremum sem fást frá Rapunzel. Ég nota lífrænt 70% súkkulaði frá Rapunzel í þær og mér finnst það lykilatriði að nota dökkt gæðasúkkulaði í bollurnar. Kanillinn gefur líka mjög gott bragð og algjört möst að hafa hann með.
Leave a Reply