Innihaldslýsing

2 kjúklingabringur
1 msk olía
200g Satay sósa frá Blue dragon
Salt og pipar
Safi úr ½ lime
4 vefjur
Fersk salatblöð
Spínat
Ferskt rauðkál, smátt skorið
Gulrætur, rifnar eða skornar smátt langsum
Jarðhnetur, ósaltaðar
Ferskt kóríander
Það verður allt svo dásamlegt sem sett er inn í vefjur og þessar eru engin undantekning. Sósurnar frá Blue dragon koma með asískt yfirbragð í matseldina og Satay sósan frá þeim er sjúklega góð og hægt að nota á fjölbreyttan hátt. Ég nota hana almennt mikið í kjúklingarétti en hérna ákvað ég að útbúa vefjur...

Leiðbeiningar

1.Skerið kjúklingabringur í strimla. Hitið olíu á pönnu og setjið kjúklinginn út á. Saltið og piprið.
2.Steikið þar til kjúklingurinn brúnast. Bætið Satay sósunni út á ásamt lime safa, lækkið hitann og eldið þar til kjúklingurinn er steiktur í gegn.
3.Skerið grænmeti og undirbúið vefjurnar. Raðið grænmetinu á vefjurnar, toppið með kjúkling, jarðhnetum og fersku kóríander. Rúllið upp og njótið strax.

Það verður allt svo dásamlegt sem sett er inn í vefjur og þessar eru engin undantekning. Sósurnar frá Blue dragon koma með asískt yfirbragð í matseldina og Satay sósan frá þeim er sjúklega góð og hægt að nota á fjölbreyttan hátt. Ég nota hana almennt mikið í kjúklingarétti en hérna ákvað ég að útbúa vefjur sem eru í senn fljótlegar, bragðgóðar og fallegar! Kjúklingurinn passar ótrúlega vel með sósunni og ferskt og stökkt grænmetið er fullkomið með. Það tekur enga stund að útbúa vefjurnar og þær eru líka alveg frábærar í nestisboxið.

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.