Látið hveiti, brauðrasp, bjór og krydd saman í skál og blandið vel saman. Þerrið risarækjurnar vel og dýfið svo í deigið. Hitið olíuna vel í potti og djúpsteikið risarækjurnar þar til þær eru stökkar og gylltar á lit. Hitið tortillurnar og setjið þá sriracha mayo, salat, risarækjur og smá sósu yfir.
1/2 hvítkál
1/4 rauðkál
1/2 búnt ferskt kóríander
2 msk lime safi
2 msk ananassafi
Skerið kálið niður í þunna strimla. Saxið kóríander og blandið öllu saman í skál. Geymið í kæli.
2 dl Heinz mayonnnaise
1 msk Sriracha Tabsco
1 tsk hunang
Blandið hráefnum saman í skál og smakkið til. Geymið í kæli þar til maturinn er borinn fram.
Leave a Reply