Uppskriftin kom upprunarlega af vefnum mylittlekitchen
50 g smjör | |
5 dl mjólk | |
1 pakki þurrger | |
200 g kotasæla | |
2 dl haframjöl | |
1/2 tsk salt | |
10 dl hveiti (eða meira eftir þörfum) | |
1 egg til penslunar | |
birkifræ |
Gerir um 12 stk
1. | Bræðið smjörið í potti. Hellið mjólkina saman við. Hrærið saman. Þegar blandan er fingurvolg látið þá þurrgerið út í. |
2. | Setjið í hrærivélaskál ásamt haframjöli, kotasælu og salt. Bætið hveiti saman við 1 dl í einu um leið og deigið er orðið þétt í sér og óklístrað þá þarf ekki meira hveiti. Hnoðið í 5 mínútur. |
3. | Látið hefast í klukkustund með rakan klút yfir skálinni. |
4. | Skiptið deiginu niður í 18 stykki og hverju stykki í þrjá hluta. Rúllið hverjum hluta út, tengið þrjá hluta saman og fléttið. Endurtakið. |
5. | Látið hefast í 15 mínútur. Penslið bollurnar með þeyttu eggi og stráið birkifræjum yfir. |
6. | Setjið í 200°c heitan ofn í 15 mínútur eða til þau eru orðin gyllt að lit. |
Leave a Reply