Hér er á ferðinni alveg frábær réttur sem hentar svo fullkomlega sem léttur kvöldmatur, hádegismatur og hreint út sagt frábær í saumaklúbbinn eða vinahittinginn með góðu hvítvíni. Léttmarineraða risarækjur með fersku avacadosalsa og ljúfri kóríandersósu. Fyrir þá sem eru mótfallnir kóríander (skamm skamm) þá má vel nota aðrar kryddjurtir eins og myntu eða basilíku. Vínsérfræðingurinn mælir með STEMMARI, Pinot Grigio.
Styrkt færsla
Leave a Reply