Innihaldslýsing

2 Kjúklingabringur, eldaðar
3 kúfaðar msk Tandoori spice marinade frá Patak's
2 naan brauð með hvítlauk og kóríander frá Patak's
Rifinn mozzarella
1/2 þroskað avocado
Rauð paprika í sneiðum
Tómatur skorinn í sneiðar
ólívuolía
Sjávarsalt
Þessi grillaða naan loka er dásamlegt tvist á indverskri matargerð. Ótrúlega fljótleg og bragðast dásamlega. Það er um að gera að nýta afgangs kjúkling í þessa en svo er líka hægt að nálgast eldaðan kjúkling í næstu verslun. Tandoori sósan passar alveg ótrúlega vel með kjúkling en einnig er hægt að marinera fisk t.d. Möguleikarnir...

Leiðbeiningar

1.Eldið bringurnar eða nýtið afganga. Rífið þær í sundur með 2 göfflum og hrærið Tandoori maríneringunni saman við.
2.Takið eitt naan brauð og snúið krydd hliðinni niður. Dreifið osti eftir smekk yfir brauðið. Dreifið kjúklingnum yfir ostinn. Þetta er rúmlegt magn af kjúklingi, ég skildi smá eftir. Því næst raðið þið avocado, papriku og tómötum yfir og toppið með smá osti í lokin. Lokið samlokunni með hinu naan brauðinu og setjið í mínútugrill. Þegar samlokan hefur verið í grillinu í ca. 1-2 mín, opnið þið grillið og penslið samlokuna með ólífuolíu og stráið Maldon salti yfir. Grillið þar til osturinn er bráðinn.
3.Á meðan samlokan er í grillinu hrærum við í einföldustu og bestu sósuna. Passar fullkomlega með þessari samloku en reyndar einnig með flest öðru, fiski, kjúklingi, til að dýfa í...

Þessi grillaða naan loka er dásamlegt tvist á indverskri matargerð. Ótrúlega fljótleg og bragðast dásamlega. Það er um að gera að nýta afgangs kjúkling í þessa en svo er líka hægt að nálgast eldaðan kjúkling í næstu verslun.

Tandoori sósan passar alveg ótrúlega vel með kjúkling en einnig er hægt að marinera fisk t.d. Möguleikarnir eru óþrjótandi!

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.