

| 120 g smjör | |
| 120 g púðursykur | |
| 1 stórt egg | |
| 1 tsk vanilludropar | |
| 120 g hveiti | |
| 40 g OTA haframjöl | |
| 1/2 tsk natrón | |
| 1/2 tsk sjávarsalt | |
| 100 g súkkulaði, saxað |
| 1. | Látið smjörið í pott og hitið við vægan hita í 3-4 mínútur. Hrærið stöðugt þar til smjörið er farið að freyða og smjörið byrjað að brúnast. |
| 2. | Látið í hrærivélaskálina og látið standa í 10-15 mínútur. |
| 3. | Látið púðursykur, egg og vanilludropa í hrærivélaskálina með brúnaða smjörinu og hrærið öllu saman. |
| 4. | Bætið hveiti, haframjöli, natron og salti saman við og hrærið áfram. |
| 5. | Endið á að láta súkkulaðið saman við deigið. |
| 6. | Mótið deigið í kúlur og látið á bökunarpappír. Þrýstið aðeins á kúlurnar svo þær fletjist út. |
| 7. | Látið í 170°c heitan ofn í 8-10 mínútur. |
| 8. | Stráið sjávarsalti yfir kökurnar þegar þær hafa kólnað lítillega. |

Leave a Reply