Innihaldslýsing

60g grófir hafrar, malaðir fínt*
40g ristaðar heslihnetur, malaðar fínt*
130g döðlur, lagðar í bleyti í heitt vatn*
50g möndlusmjör frá Rapunzel
¼ tsk vanilluduft*
3 msk kakó*
1 msk oatly matreiðslurjómi
¼ tsk salt
50g gróft muldar heslihnetur*
24 heilar heslihnetur, ristaðar*
2 plötur Nirwana vegan súkkulaði*
1 plata 85% súkkulaði*
*lífrænt & vegan frá Rapunzel
Eitt af mínu uppáhalds sælgæti eru Ferrero rocher kúlurnar í gyllta bréfinu. Það er eitthvað við þessa blöndu af heslihnetum, súkkulaði og núggati sem ég stenst sjaldnast. Mig langaði að prófa að gera einhverja skemmtilega útgáfu af þeim heima þar sem ég gæti notast við lífræn og vegan hráefni. Ég skoðaði ýmsar útgáfur og prófaði...

Leiðbeiningar

1.Byrjið á því að rista 200g af heslihnetum. Setjið hneturnar á ofnplötu og ristið í ofninum við 160°C í 10-15 mín eða þar til þær eru orðnar vel gylltar. Takið úr ofninum og kælið í 5 mínútur áður en þið hellið þeim á viskastykki og nuddið mesta skurnina af. Kælið.
2.Leggið döðlurnar í bleyti í sjóðandi heitt vatn í 20 mínútur.
3.Setjið haframjöl í matvinnsluvél og malið fínt. Bætið heslihnetum saman við og vinnið saman í mjöl með höfrunum.
4.Hellið vatninu af döðlunum og setjið í matvinnsluvélina. Setjið restina af innihaldsefnum fyrir utan heilar heslihnetur og súkkulaðið í vélina og vinnið í deig. Skafið deigið í skál og kælið aðeins, þannig er betra að vinna með það.
5.Saxið súkkulaðið og bræðið yfir vatnsbaði. Setjið 50g af heslihnetum í matvinnsluvélina og vinnið þar til þær eru gróft saxaðar en þannig að hægt sé að rúlla kúlunum upp úr þeim.
6.Takið deigið úr kæli, ég vigtaði kúlurnar og hafði þær um 13-14g hverja. Setjið eina heslihnetu í miðjuna og rúllið í kúlu. Rúllið þá kúlunni í heslihnetumulning og leggið á plötu. Haldið áfram þar til allar kúlurnar hafa verið mótaðar. Geymið í kæli á meðan súkkulaðið er brætt.
7.Dýfið hverri kúlu í súkkulaði, látið leka vel af og setjið á grind eða plötu. Haldið áfram þar til allar kúlurnar hafa verið hjúpaðar. Kælið vel.
8.Þegar kúlurnar eru orðnar vel kaldar er hægt að raða þeim í box. Geymist í kæli.

Eitt af mínu uppáhalds sælgæti eru Ferrero rocher kúlurnar í gyllta bréfinu. Það er eitthvað við þessa blöndu af heslihnetum, súkkulaði og núggati sem ég stenst sjaldnast. Mig langaði að prófa að gera einhverja skemmtilega útgáfu af þeim heima þar sem ég gæti notast við lífræn og vegan hráefni. Ég skoðaði ýmsar útgáfur og prófaði allskonar og þessi blanda varð ofan á. Ristuð heslihneta klædd í konfektkápu sem er svo velt upp úr hökkuðum heslihnetum og svo dýft í súkkulaði. Algjörlega ómótstæðileg blanda! Þetta verðið þið að prófa.

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.