
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Örnu.

| 1-2 svampbotnar | |
| 3-5 msk sherrý | |
| 300 g súkkulaði með piparmyntufyllingu | |
| 500 ml 36 % rjómi frá Örnu | |
| 150 g rjómaostur | |
| 3 msk sterkt kaffi | |
| 1 tsk vanilludropar |
| 1. | Skerið svambotninn í bita og setjið um 1/3 í botninn á skál. Dreypið smá sherrýi yfir. |
| 2. | Hitið 1 dl af rjómanum og bætið 150 g af súkkulaðinu saman við og bræðið. Látið rjómann ekki sjóða. Kælið síðan blönduna lítillega. |
| 3. | Setjið rjómaost, vanilludropa og kaffi saman í skál og hrærið. Hellið súkkulaðirjómanum saman við og hrærið áfram. |
| 4. | Hellið smá hluta af rjómaosta-súkkulaðiblöndunni yfir svampbotninn í skálinni. |
| 5. | Setjið smá af söxuðu piparmyntusúkkulaði yfir og endurtakið síðan. Svambotn, sherrý, rjómaosta-súkkulaðiblandan og saxað piparmyntusúkkulaði. Þar til allt er búið. |
| 6. | Þeytið afganginn af rjómanum í skál og skreytið triffli með því að sprauta rjómanum þar yfir. |
| 7. | Endið á söxuðu súkkulaði. |
| 8. | Geymið í kæli í nokkra klst áður en það er borið fram. |

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Örnu.
Leave a Reply