Innihaldslýsing

1 pakki lítlar tígrisrækjur frá Sælkerafiski
3 hvítlauksrif
5 cm engiferrót
1 rautt chilí
1 búnt kóríander
safi úr 1 sítrónu
3 msk sweet chilí sósa, t.d. frá Blue dragon
salt og pipar
Fyrir 2

Leiðbeiningar

1.Takið risarækjurnar úr pakkningunni og takið allan vökva frá.
2.Pressið hvítlauksrifin, saxið engifer og kóríander smátt. Saxið chilí einnig smátt, takið fræin frá ef þið viljið ekki hafa réttinn bragðmikinn.
3.Hitið olíu á pönnu og setjið risarækjur og hvítlauk á pönnuna og steikið. Kryddið með salti og pipar.
4.Eftir um 1 mínútu setjið engifer, chilí og kóríander á pönnuna og steikið þar til rækjurnar eru tilbúnar.
5.Í lokin, bætið sítrónusafa og sætri chilísósu saman við.
6.Berið fram með einföldu salati og/eða hrísgrjónum.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.