Innihaldslýsing

16 sneiðar parmaskinka, t.d. Gran Brianza Prosciutto Di Parma
2 x 100 g brie ostur
1 poki blandað salat
60 g pekanhnetur
20 græn vínber, skorin langsum
2 msk balsamik edik, t.d. frá Philippo Berio
2 msk sýróp
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leiðbeiningar

1.Þurristið hneturnar á pönnu. Gott er að nota vægan hita, hneturnar eiga að taka lit en ekki brenna.
2.Skerið hvorn ost í 2 hluta. Vefjið parmaskinku sneiðunum þétt utanum hvert oststykki.
3.Steikið parmaostinn á þurri og vel heitri pönnu. Snúið bitunum reglulega á pönnunni og steikið í um 6 mínútur alls. 
4.Hrærið balsamik ediki og sírópi saman.
5.Skiptið salatblöndunni á 4 diska, látið pekanhnetur og vínber yfir salatið og síðan parmaostinn. Dreypið balsamiksýrópinu yfir allt.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.