Innihaldslýsing

800g - 1 kg ýsuflök, roðflett og beinlaus
1 bolli þurr hýðishrísgrjón soðin, líka gott að nota afgangs hrísgrjón
1 rauð paprika
10 cm blaðlaukur
150g sveppir
250g kotasæla
1 dl rjómi frá Örnu
3 msk majónes
1 krukka salatfeti frá Örnu
1/2 fiskiteningur - 1/2 grænmetisteningur
sítrónupipar
1 tsk dill
1 poki rifinn mozarella með hvítlauk frá Örnu
Gratíneraðir fiskréttir hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Góð sósa er auðvitað lykilatriði og bráðinn osturinn til þess að toppa allt. Þessi réttur er reglulega góður og alls ekki flókinn í gerð. Fullkominn fyrir alla fjölskylduna og uppskriftin er stór svo það er jafnvel hægt að frysta afgangana til að eiga síðar eða...

Leiðbeiningar

1.Byrjið á því að sjóða einn bolla af hýðishrísgrjónum eftir leiðbeiningum. Setjið í eldfast mót.
2.Skerið ýsuna í bita og leggið ofan á hrísgrjónin og kryddið með sítrónupipar eftir smekk.
3.Saxið grænmetið og stráið yfir fiskinn.
4.Sigtið fetaostinn og stappið. Blandið saman í skál, kotasælu, fetaosti, rjóma og majónesi. Myljið fiski og grænmetistening út í og kryddið með dilli.
5.Setjið sósuna yfir grænmetið og toppið með rifnum mozzarella.
6.Bakið við 190°C í 30 mín eða þar til osturinn er gylltur og fiskurinn tilbúinn. Berið fram með fersku salati og soðnum kartöflum.

Gratíneraðir fiskréttir hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Góð sósa er auðvitað lykilatriði og bráðinn osturinn til þess að toppa allt. Þessi réttur er reglulega góður og alls ekki flókinn í gerð. Fullkominn fyrir alla fjölskylduna og uppskriftin er stór svo það er jafnvel hægt að frysta afgangana til að eiga síðar eða taka með í nesti daginn eftir.

 

 

 

Uppskrift og myndir unnar af Völlu í samstarfi við Örnu, mjólkurvinnslu á Bolungarvík

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.