Innihaldslýsing

600 g spelt, fínmalað frá Himneskri hollustu
300 g spelt, grófmalað frá Himneskri hollustu
100 g hörfræ
150 g haframjöl, frá Himneskri hollustu
50 g sesamfræ
50 g chiafræ
1 msk hveitiklíð
1 pakki þurrger
1 l vatn
2 msk ólífuolía
Uppskriftin gefur 2-3 brauð

Leiðbeiningar

1.Setjið þurrefnin saman í skál ásamt geri.
2.Hitið vatnið þar til það er fingurvolgt og hellið saman við.
3.Bætið olíu saman við og hnoðið vel þar til það er orðið þétt í sér og farið að losna frá hrærivélaskálinni. Látið hefast í 30 mínútur.
4.Skiptið deiginu niður á tvö (2 l) eða þrjú (1.5 l) brauðform.
5.Látið hefast í smá tíma með viskustykki eða plastfilmu.
6.Setjið í 200°c heitan ofn í 30 mínútur. Takið úr forminu og bakið áfram í 10 mínútur.

 

Það er tilvalið að baka þetta brauð í upphafi vikunnar og eiga í frysti.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Himneska hollustu

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.