


| 800 g kjúklingalæri, t.d. frá Rose Poultry | |
| 1 dl hunang | |
| 50 ml soyasósa, t.d. frá Blue dragon | |
| 50 ml vatn |
| 1. | Skerið kjúklingalærin í bita. |
| 2. | Hitið hunang, soyasósu og vatn saman í potti við vægan hita. Látið malla í 10 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað. |
| 3. | Þræðið kjúkling upp á litla teina eða klippið þá til þannig að þeir komist fyrir á pönnu. |
| 4. | Hellið sósunni á pönnuna og hitið við vægan hita. Veltið kjúklinginum í sósunni á meðan kjúklingurinn eldast eða í um 8-10 mínútur. |
| 5. | Takið kjúklingaspjótin af pönnunni og hellið afgangs sósunni yfir kjúklinginn. |



Leave a Reply