225 ml eggjahvítur (ca. 6 stk) | |
330 g flórsykur | |
1 1/2 tsk hvítvínsedik | |
2 tsk maizenamjöl | |
4 dl rjómi, þeyttur | |
250 g hindber | |
2 msk pistasíuhnetur, saxaðar |
Falleg hátíðarkaka sem mun slá í gegn!
1. | Stillið ofninn á 160°c. |
2. | Setjið eggjahvíturnar í skál og þeytið á mesta styrk í 2 mínútur. Bætið þá sykrinum saman við, einni skeið í einu. Hrærið í 5 mínútur til viðbótar eftir að allur sykurinn er kominn í. |
3. | Bætið ediki og maizenamjöli saman við og hrærið áfram í 2 mínútur. |
4. | Notið 22 cm form til að teikna nokkra hringi á smjörpappír. Setjið marengsinn inn í hringinn með sprautupoka eða skeið. |
5. | Dýfið hnífsoddi í sírópið og dragið línur í marensinn. Mér finnst gott að gera bara smá og eiga síróp eftir til að láta yfir marengsinn þegar hann er bakaður. |
6. | Setjið marengsinn inn í ofninn og lækkið hitann strax í 120°c og bakið í 70 mínútur eða þar til hann er orðinn stökkur að utan. |
7. | Takið úr ofninum, látið þeyttan rjóma, síróp og pistasíuhnetur yfir allt. |
8. | Slökkvið á ofninum og látið pavlovuna vera í lokuðum ofninum þar til hann hefur kólnað alveg. Gott að gera þetta kvöldinu áður. |
Leave a Reply