50 g OTA haframjöl, gróft | |
1/2 tsk vanilludropar | |
1 1/2 tsk hlynsíróp | |
60 ml eplamauk eða stappaður banani | |
60 ml möndlumjólk (eða önnur mjólk) | |
klípa salt | |
ólífuolía til að pensla form | |
púðursykur (má sleppa) | |
Glassúr: 2 msk flórsykur og 1 tsk rjómi/mjólk |
Gerir 1 snúð
1. | Blandið haframjöli, vanilludropum, hlynsírópi, eplamauki, mjólk og salti saman í skál. Blandið vel. |
2. | Penslið lítið form með olíu og látið deigið þar í. Stráið púðursykrinum yfir. |
3. | Látið í 175°c heitan ofn í um 30 mínútur. Látið í grill í 2-3 mínútur til að brúna toppinn. Takið úr ofni og kælið. |
4. | Látið glassúr yfir snúðinn og njótið. |
Leave a Reply