1-2 msk ólífuolía | |
1 kg kjúklingalæri | |
sjávarsalt og svartur pipar | |
Sósa: | |
2 hvítlauksrif, pressuð | |
1 msk ferskt timían | |
1 tsk muldar chilíflögur | |
180 ml kjúklingasoð | |
120 ml 36% rjómi frá Örnu | |
30 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir | |
1/2 dl rifinn parmesan | |
Fersk basilíka |
Þessi réttur sem kallast "Viltu giftast mér?" er einfaldur og ótrúlega bragðgóður!
1. | Þerrið kjúklinginn með eldhúsbréfi og kryddið með salti og pipar. |
2. | Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn í 4-5 mínútur á hvorri hlið. Takið kjúklinginn til hliðar og hellið helming vökvans af pönnunni. |
3. | Steikið hvítlauk, timían og muldar chilíflögur í 1 mínútu. |
4. | Bæði kjúklingasoði, rjóma, sólþurrkuðum tómötum og parmesan og látið malla. Bætið kjúklingnum út á pönnuna fitan snýr upp.. |
5. | Eldið í 180°c heitum ofni í 20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. |
6. | Stráið saxaðri basilíku yfir réttinn og berið fram. |
Leave a Reply