Það er einnig gott að setja dijon sinnep í stað skinkumyrju.

| 150 g smjör | |
| 3 dl vatn | |
| 3 dl mjólk | |
| 2 tsk sykur | |
| 3 tsk salt | |
| 2 bréf þurrger | |
| 1 kg hveiti | |
| skinkumyrja | |
| rifinn mozzarella | |
| egg, þeytt | |
| etv sesamfræ |
Það er einnig gott að setja dijon sinnep í stað skinkumyrju.
| 1. | Bræðið smjörið í potti. Hellið vökvanum saman við. |
| 2. | Setjið sykur, salt og þurrgert út í volgan vökvann. |
| 3. | Setjið að lokum hveiti saman við og hnoðið vel. |
| 4. | Látið deigið lyfta sér undir rökum klúti í tæpa klukkustund eða þar til það hefur tvöfaldast í stærð. |
| 5. | Takið smá deigbút og fletjið í hring. Setjið skinkumyrju yfir og svo ost yfir allt. Skerið í 8 bita og rúllið upp, byrjað frá endanum og að miðju. |
| 6. | Penslið hornin með léttþeyttu eggi og stráið etv. sesamfræjum yfir. |
| 7. | Bakið í 200°c heitum ofni í um 15-20 mínútur eða þar til þau hafa fengið gullin lit. |
Leave a Reply