Innihaldslýsing

1 geiralaus hvítlaukur
1 rauðlaukur
1 rauð paprika
120g sveppir
1 poki spínat (200g)
1 dós bakaðar baunir frá Rapunzel
1 dós niðursoðnir tómatar frá Rapunzel
1 flaska tómat passata frá Rapunzel
3 msk tómatpúrra frá Rapunzel
12 Kalamata ólífur frá Rapunzel
2-3 msk grænmetiskraftur frá Rapunzel
1 rúmleg msk af grænu pestói frá Rapunel
1 dós Oatly rjómaostur
1 bolli rauðar linsubaunir
½ bolli vatn
salt og pipar
1 msk oregano
þurrkuð steinselja eftir smekk
500g heilhveiti spagettí frá Rapunzel
Næringarger eftir smekk frá Rapunzel
Þetta Bolognese er eitt af því besta sem ég hef gert og allir í fjölskyldunni borðuðu á sig gat. Það vill svo til að það er vegan og einfalt í gerð. Auðvelt er að skipta út grænmetistegundum eftir því hvað er til í ísskápnum hverju sinni.   Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes,...

Leiðbeiningar

1.Takið fram steypujárnspott ef þið eigið, annars er hægt að nota bara víðan þykkbotna pott.
2.Saxið grænmeti, má alveg skipta út grænmetistegundum og nota bara það sem þið eigið til.
3.Steikið grænmetið upp úr olíunni, þegar laukurinn hefur mýkst og grænmetið náð smá lit bætið þið bökuðum baunum, niðursoðnum tómötum, passata, tómatpúrru, pestói og grænmetiskrafti út í.
4.Bætið linsubaunum og vatni út í og látið malla í 30-40 mín
5.Sjóðið spagettí eftir leiðbeiningum
6.Bætið við salti, pipar og kryddum og smakkið til. Látið malla við meðalhita í 30 - 40 mín.
7.Berið fram með ólífum, kirsuberjatómötum, ferskri basiliku og næringargeri

Þetta Bolognese er eitt af því besta sem ég hef gert og allir í fjölskyldunni borðuðu á sig gat. Það vill svo til að það er vegan og einfalt í gerð. Auðvelt er að skipta út grænmetistegundum eftir því hvað er til í ísskápnum hverju sinni.

 

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes, umboðsaðila Rapunzel á Íslandi.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.