
Unnið í samstarfi við Innnes
| 1 stór eða 2 litlir marengsbotnar að eigin vali, (mælum með þessum: 4 eggjahvítur 2 dl púðusykur 1 dl sykur 50 g rice krispies, bakað við 150°C í 50 mín) | |
| 400ml rjómi | |
| 150g saxað daim | |
| 300g jarðarber skorin | |
| 200g bláber | |
| 100g rauð vínber skorin | |
| 100g daim grófsaxað | |
| Saltkaramellusósa, tegund eftir smekk |
| 1. | Tekið til stórt ofnfast mót og brjótið marengsinn ofan í formið. |
| 2. | Þeytið rjómann ekki alveg stífþeyttan og blandið söxuðu daim-i við með sleikju |
| 3. | Þekið marengsinn með daim rjómanum |
| 4. | Raðið eða dreifið berjum og grófsöxuðu daim-i yfir rjómann |
| 5. | Toppið með saltkaramellu eftir smekk |
| 6. | Geymið í kæli og gott að gera þetta með smá fyrirvara svo marengsinn nái að blotna vel |

Unnið í samstarfi við Innnes
Leave a Reply