Þessi færsla er unnin i samvinnu við Innnes
3-4 msk ólífuolía | |
3-4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry | |
3 rauðar paprikur | |
1 púrrulaukur | |
1-3 msk karrý | |
1-3 stk hvítlauksrif | |
2 flösnkur Heinz chilísósa | |
400 g Philadelphia rjómaostur | |
500 ml matreiðslurjómi | |
1 l vatn (jafnvel meira) | |
1 msk Oscar's kjúklingakraftur | |
cayenne pipar | |
salt og pipar |
1. | Skerið kjúkingabringurnar í bita og steikið á pönnu með salti og pipar. Setjið til hliðar á disk. |
2. | Skerið grænmetið smátt. |
3. | Hitið olíu í stórum potti ásamt karrý. Bætið grænmetinu út í pottinn og mýkið. |
4. | Látið chilísósuna, rjómaostinn, rjóma, krydd og kjúklingakraft út í pottinn og vatni. Látið malla í 15 mínútur. |
5. | Setjið kjúklinginn saman við og bætið við meira vatni ef þörf er á. Smakkið til með kryddi. |
Þessi færsla er unnin i samvinnu við Innnes
Leave a Reply