Innihaldslýsing

3-4 msk ólífuolía
3-4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
3 rauðar paprikur
1 púrrulaukur
1-3 msk karrý
1-3 stk hvítlauksrif
2 flösnkur Heinz chilísósa
400 g Philadelphia rjómaostur
500 ml matreiðslurjómi
1 l vatn (jafnvel meira)
1 msk Oscar's kjúklingakraftur
cayenne pipar
salt og pipar
Fyrir 6

Leiðbeiningar

1.Skerið kjúkingabringurnar í bita og steikið á pönnu með salti og pipar. Setjið til hliðar á disk.
2.Skerið grænmetið smátt.
3.Hitið olíu í stórum potti ásamt karrý. Bætið grænmetinu út í pottinn og mýkið.
4.Látið chilísósuna, rjómaostinn, rjóma, krydd og kjúklingakraft út í pottinn og vatni. Látið malla í 15 mínútur.
5.Setjið kjúklinginn saman við og bætið við meira vatni ef þörf er á. Smakkið til með kryddi.

 

 

 

 

 

 

Þessi færsla er unnin i samvinnu við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.