Innihaldslýsing

2 laukar
60 g smjör
60 ml grænmetisolía
1/4 tsk cayenne pipar
1 tsk salt
1/4 tsk svartur pipar
110 g Philadelphia rjómaostur
120 ml sýrður rjómi
120 ml Heinz Serously Good mayonnese

Leiðbeiningar

1.Skerið laukana í tvennt og þá í þunnar sneiðar.
2.Hitið olíu og smjör á pönnu. Látið lauk, cayenne, salt og pipar á pönnuna og steikið við meðalhita í 10 mínútur. Lækkið hitann og steikið áfram í 20 mínútur eða þar til laukurinn er kominn með karamellaða áferð. Kælið.
3.Þeytið rjómaost, sýrðan rjóma og majó saman. Bætið lauknum saman við. Smakkið til með kryddi.
Færslan er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.