Innihaldslýsing

100g smjör
100g suðusúkkulaði frá Nóa Siríus
150g Piparkúlur frá Nóa Siríus
4 msk sírópið í grænu dósunum
200g Rice Krispies
1 peli rjómi ofan á
Nóa kropp eftir smekk
Þessi kaka er ein sú rosalegasta í seinni tíð! Piparkúlurnar frá Nóa gegna hér veigamiklu hlutverki með Rice krispies morgunkorni en að viðbættum rjóma, Nóa kroppi og lakkrískremi verður þetta algjör bomba. Þessa þarf ekki að baka frekar en flestar Rice krispies kökur og er því fljótleg og þægileg. Hún passar sérlega vel á veisluborðið...

Leiðbeiningar

1.Bræðið smjör, suðusúkkulaði, piparkúlur og síróp saman í potti þar til allt er orðið samlagað og bráðið.
2.Setjið Rice krispies í skál og hellið blöndunni yfir og blandið saman með sleikju. Klæðið 20-22cm smelluform með bökunarpappír og þrýstið blöndunni í formið. Kælið vel.
3.Þeytið rjómann og setjið á kaldan botninn. Dreifið kreminu yfir og stráið Nóa kroppi yfir eftir smekk

Þessi kaka er ein sú rosalegasta í seinni tíð! Piparkúlurnar frá Nóa gegna hér veigamiklu hlutverki með Rice krispies morgunkorni en að viðbættum rjóma, Nóa kroppi og lakkrískremi verður þetta algjör bomba. Þessa þarf ekki að baka frekar en flestar Rice krispies kökur og er því fljótleg og þægileg. Hún passar sérlega vel á veisluborðið eða í saumaklúbbinn.

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Nóa Siríus.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.